Apr 6, 2012

Þrúguferð númer #2

Þegar ég leit út í morgunn hafði snjóað 15 cm í viðbót ofan á þann hálfa meter sem komið hefur síðustu dagana.  Það leit því út fyrir að ferðalag dagsins yrði erfiðar fyrir vikið.

Fór af stað rúmlega 11 og ætlaði sömu leið og í gær og bæta nokkrum km við ef aðstæður leyfðu.  Færið var frá fyrsta skrefi mun erfiðara en í gær og sökk ég í hverju skrefi 25-30 cm og sumstaðar upp að hné.   Þegar ég kom upp að kofanum fann ég að ég hafði ekkert að gera með að fara lengra, fékk mér smá að borða áður en ég snéri við og notaðist við Garmin að halda mér á réttri leið heim en af og til blés hressilega svo skyggnið varð núll og öll spor hurfu. Hef gengið töluvert á þrúgunum í vetur en það var mest á hörðum snjó, nú þegar lyfta þarf fótunum upp úr djúpum sporunum verður æfingin 5x erfiðari en ætti að skila sér í fjöllunum í sumar.

Þrúgur:
13.01 km
4:01.07 klst
444 m heildarhækkun

Þrúguferð #2

Þrúguferð númer #1 um Páskana

Það hefur snjóað alveg helling síðustu dag eftir nánast snjólausan vetur og markmið fyrir Páskana var að ganga amk í 3-4 tíma á dag.   Fór í dag inn að Glimmevannshytta sem er ca. 13-14 km fram og til baka.

Snjódýptin gerði ferðina ansi krefjandi og var ekki mikið á tanknum þegar ég kom niður í bílinn eftir tæpar 4 klst.  Þræddi allar brekkur sem urðu á vegi mínum.

Þrúgur fimmtudagur:
14.17 km
3:44.57 klst
521 m heildarhækkun

Hlaup um kvöldið:
11.19 km
1:08:00 klst
Var ekki mikil orka eftir fyrir hlaupið

Þrúguferð #1 at Garmin Connect - Details

Mar 24, 2012

Bear Mountain

Eftir la la viku þar sem magaverkir voru að hrjá mig eftir að hafa borðað eitthvað vafasamt þá skrölti ég 30 km í dag. Fyrsta 30 km hlaupið á árinu. Kom mér á óvart hvað ég var ferskur eftir hlaupið og hefði alveg getað rúllað nokkra km í viðbót. Orsökin fyrir þessum ferskleika var skráning í Bear Mountain hlaupið sem er eitt af hlaupunum sem mynda The North Face Endurance Challenge. 50 mílna hlaup svo það var bara að skella sér í gírinn einn tveir og bingó. Hef verið að lyfta vel í vetur og fann ég að það var að koma sterkt inn núna. Stefni á að enda vikuna í ca. 100 km.

Mar 19, 2012

Hardmoors 55

Blautt og kalt hlaup. 19 sæti 10:42:48. Mætti illa undirbúinn og ekki bætti veðrið úr skák. Hljóp ekki nógu hratt seinni hlutann og endaði nálægt 11 tímum í staðinn fyrir sub 10.

Mar 10, 2012

"vetur"

Hann hefur verið frekar aumingjalegur veturinn hér í Noregi, bara smá snjór hér og þar. Ekki hefur verið hægt að fara á skíði nema stysta hringinn í gönguskíðabrautinni sem ég hef ekki nennt að ganga, brautin er þannig að maður gengur upp brekku, rennir sér niður hinum meginn og svo upp brekkuna þar á eftir o.s.frv. Ekki sléttur blettur svo gangan verður frekar leiðinleg. Þegar nægur snjór er hefur verið gert spor inn að skála inn á fjöllunum ca. 5 km önnur leið en sökum snjóleysis hefur það ekki verið gert í vetur, fór um síðustu helgi þessa leið á snjóþrúgum og það svona rétt slapp innan um grjótið en margir fóru á skíðum hafa örugglega komið með nokkrar vænar rispur heim. Undanfarna daga hefur sólin brotist fram og þótt það hafi ekki verið heitt hefur sólin náð að bræða snjóinn töluvert og í dag var leiðin orðin auð á stórum köflum og vötnin sem farið er yfir orðin snjólaus og bara ísskán yfir þeim. Vona að veturinn hangi nokkra vikur til, enda þrælfínt að ganga á snjóþrúgum um fjöllin, fínast æfing!