Mar 24, 2012

Bear Mountain

Eftir la la viku þar sem magaverkir voru að hrjá mig eftir að hafa borðað eitthvað vafasamt þá skrölti ég 30 km í dag. Fyrsta 30 km hlaupið á árinu. Kom mér á óvart hvað ég var ferskur eftir hlaupið og hefði alveg getað rúllað nokkra km í viðbót. Orsökin fyrir þessum ferskleika var skráning í Bear Mountain hlaupið sem er eitt af hlaupunum sem mynda The North Face Endurance Challenge. 50 mílna hlaup svo það var bara að skella sér í gírinn einn tveir og bingó. Hef verið að lyfta vel í vetur og fann ég að það var að koma sterkt inn núna. Stefni á að enda vikuna í ca. 100 km.

Mar 19, 2012

Hardmoors 55

Blautt og kalt hlaup. 19 sæti 10:42:48. Mætti illa undirbúinn og ekki bætti veðrið úr skák. Hljóp ekki nógu hratt seinni hlutann og endaði nálægt 11 tímum í staðinn fyrir sub 10.

Mar 10, 2012

"vetur"

Hann hefur verið frekar aumingjalegur veturinn hér í Noregi, bara smá snjór hér og þar. Ekki hefur verið hægt að fara á skíði nema stysta hringinn í gönguskíðabrautinni sem ég hef ekki nennt að ganga, brautin er þannig að maður gengur upp brekku, rennir sér niður hinum meginn og svo upp brekkuna þar á eftir o.s.frv. Ekki sléttur blettur svo gangan verður frekar leiðinleg. Þegar nægur snjór er hefur verið gert spor inn að skála inn á fjöllunum ca. 5 km önnur leið en sökum snjóleysis hefur það ekki verið gert í vetur, fór um síðustu helgi þessa leið á snjóþrúgum og það svona rétt slapp innan um grjótið en margir fóru á skíðum hafa örugglega komið með nokkrar vænar rispur heim. Undanfarna daga hefur sólin brotist fram og þótt það hafi ekki verið heitt hefur sólin náð að bræða snjóinn töluvert og í dag var leiðin orðin auð á stórum köflum og vötnin sem farið er yfir orðin snjólaus og bara ísskán yfir þeim. Vona að veturinn hangi nokkra vikur til, enda þrælfínt að ganga á snjóþrúgum um fjöllin, fínast æfing!