Mar 13, 2011

Skíði

Vinstra hnéið hefur ekki verið að gera sig undanfarið og ákvað ég að hlaupa lítið um helgina, bara 12 km í gær. Skellti ég mér hinsvegar tvisvar á gönguskíði í dag. Fyrst upp á fjöllin hér í kring á nýju cross country skíðunum. Fékk fljótt hælsæri enda ekki notað skónna lengi svo ég snéri við eftir 3 km þ.e. total 6 km. Í kvöld fór ég svo í gönguskíðabrautina og kláraði sirka 10 km. Fínt veður og verða skíðin klárlega á dagskránni næstu vikurnar.

1 comment:

  1. sæll vinur, hvernig er dagskráin fyrir sumarið. kemur þú eitthvað á klakann ?
    bk Steini

    ReplyDelete